Daninn á förum frá Tottenham

Pierre-Emile Höjbjerg er á leiðinni til Marseille.
Pierre-Emile Höjbjerg er á leiðinni til Marseille. AFP/Liselotte Sabroe

Danski knattspyrnumaðurinn Pierre-Emile Höjbjerg er á förum frá Tottenham og til Marseille í Frakklandi. 

Enskir miðlar greina frá en Marseille mun borga 15 milljónir evra fyrir Danann en sú upphæð gæti orðið 20 milljónir evra með árangurstengdum greiðslum. 

Höjbjerg gekk til liðs við Tottenham frá Southampton sumarið 2020. Hann hefur spilað 184 leiki fyrir félagið og skorað 10 mörk. 

Þá á hann 81 landsleik að baki fyrir Danmörku þar sem hann hefur einnig skorað 10 mörk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert