De Bruyne búinn að ná samkomulagi í Sádi-Arabíu?

Belginn Kevin De Bruyne er einn af aðalmönnum Manchester City.
Belginn Kevin De Bruyne er einn af aðalmönnum Manchester City. AFP/Adrian Dennis

Belgíski knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne er sagður hafa náð samkomulagi við Al-Ittihad frá Sádi-Arabíu um að leika með félaginu eftir næsta tímabil. 

De Bruyne á aðeins ár eftir af samningi sínum við Englandsmeistara Manchester City. Þá hefur hann lengi verið orðaður við félög í Sádi-Arabíu. 

Samkvæmt enskum miðlum hefur hann náð samkomulagi við Al-Ittihad um að ganga til liðs við félagið eftir komandi tímabil. 

Knattspyrnugoðsögnin Laurant Blanc er þjálfari liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert