Slæmar fréttir fyrir Arsenal

Takehiro Tomiyasu.
Takehiro Tomiyasu. AFP/Adrian Dennis

Japanski knattspyrnumaðurinn Takehiro Tomiyasu er enn einu sinni meiddur og mun missa af öllu undirbúningstímabili Arsenal. 

Enskir miðlar segja að hann muni vera frá í þrjár vikur en þá ferðast hann ekki með Arsenal til Bandaríkjanna þar sem liðið mun spila æfingaleiki. 

Tomiyasu gekk til liðs við Arsenal sumarið 2021 en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert