United vill ekki borga upphæðina

Sofyan Amrabat.
Sofyan Amrabat. AFP/Oli Scarff

Enska knattspyrnustórveldið Manchester United vill miðjumanninn Sofyan Amrabat en er ekki reiðubúið að greiða klásúluna sem gerir félaginu kleift að fá hann til sín. 

Amrabat var á láni hjá Manchester United frá Fiorentina á síðustu leiktíð og er Erik ten Hag stjóri félagsins sagður mikill aðdáandi. 

United getur samið við Amrabat ef félagið greiðir 20 milljónir evra fyrir hann. Enska félagið hefur hins vegar sagt því ítalska að það muni ekki greiða þá upphæð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert