Donnarumma á leið til Englands?

Gianluigi Donnarumma er talinn í hópi bestu markvarða heims.
Gianluigi Donnarumma er talinn í hópi bestu markvarða heims. AFP/Stephanie de Sakutin

Gianluigi Donnarumma, markvörður París SG og ítalska landsliðsins í knattspyrnu, gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina.

Ederson, markvörður Englandsmeistara Manchester City, er sterklega orðaður við flutning til Sádi-Arabíu og fréttamaðurinn Ben Jacobs segir á sínum miðlum að City sé með Donnarumma í sigtinu til að leysa hann af hólmi og hafi þegar tekið fyrstu skrefin í að reyna að fá hann í sínar raðir.

Donnarumma, sem er 25 ára, á tvö ár eftir af samningi sínum við París SG og er sagður eiga í viðræðum um framlengingu. Hann er þó sagður vera áhugasamur um að spila í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert