Kominn til Marseille frá Tottenham

Pierre-Emile Højbjerg.
Pierre-Emile Højbjerg. AFP/Liselotte Sabroe

Danski knattspyrnumaðurinn Pierre-Emile Höjbjerg er kominn til Marseille í Frakklandi þar sem stuðningsfólk félagsins fagnaði honum á flugvellinum.

Höjbjerg er á leið í læknisskoðun hjá Marseille sem kaupir hann af enska félaginu Tottenham fyrir 17 milljónir punda, en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum þar.

Reiknað er með því að Marseille kynni miðjumanninn sem nýjan leikmann félagsins innan tveggja sólarhringa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert