Tveir af leikmönnum enska knattspyrnuliðsins Tottenham fara ekki með liðinu í æfingaferð til Japan og Suður-Kóreu.
Þetta eru þeir Sergio Reguilon og Bryan Gil en þeir hafa mest lítið komið við sögu hjá Tottenham að undanförnu.
Reguilon lék sem lánsmaður með Manchester United og Brentford síðasta vetur og Gil hefur verið í láni á Spáni undanfarin tvö ár, hjá Valencia og Sevilla.
Sky Sports segir að báðir leikmennirnir séu að vinna í sínum málum við að finna sér ný félög.