Chelsea skildi sex stór nöfn eftir heima

Kepa Arrizabalaga.
Kepa Arrizabalaga. AFP

Enzo Maresca, nýráðinn knattspyrnustjóri Chelsea er að taka til í leikmannahópnum og skildi sex leikmenn eftir heima meðan liðið fer til Bandaríkjanna í æfingaferð.

Romelu Lukaku, Kepa Arrizabalaga, Trevoh Chalobah, Cesare Casadei, David Datro Fofana og Malang Sarr voru allir skildi eftir á Englandi.

Þeir eru líklegast á förum frá liðinu en Lukaku hefur verið til dæmis á láni hjá Inter Milanó og Roma og Kepa var á láni hjá Real Madríd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert