De Bruyne er ekki á förum

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City. AFP/Oli Scarff

Knattspyrnumaðurinn Kevin De Bruyne var orðaður við  Al-Itti­had og önnur félög frá Sádí-Arabíu í sumar frá Manchester City en er ekki á förum.

„Kevin er ekki að fara,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, og hélt áfram. „Ef einhver fer þá tölum við um það og það er möguleiki þangað til glugginn lokar. Eins og staðan er núna þá ætla ég ekki að útiloka það að fá nýja leikmenn en það eru 85-90% líkur að við verðum með sama leikmannahóp,“ sagði Guardiola fyrir æfingaleik liðsins gegn Celtic í dag.

Liðið spilar nokkra æfingaleiki á næstunni, gegn AC Milan, Barcelona og Chelsea áður en þeir mæta Chelsea í fyrsta leik liðsins á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert