Landsliðskonan neitar ásökunum

Khiara Keating.
Khiara Keating. Ljósmynd/Lionesses

Khiara Keating, markmaður Manchester City og enska landsliðsins, og móðir hennar,Nicola Keating, neituðu báðar ásökunum um fíkniefnabrot.

Þær voru ásakaðar um að vera með hlátursgas í bílnum sínum sem er ólöglegt á Englandi en það má nota það sem verkjalyf í hríðum.

Keating er 20 ára gömul og framlengdi samning sinn við City um þrjú ár í fyrra. Hún er varamarkmaður í enska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert