PSG hefur áhuga á United-manninum

Jadon Sancho leikur listir sínar í leik með Dortmund.
Jadon Sancho leikur listir sínar í leik með Dortmund. AFP/ FRANCK FIFE

Franksa stórveldið PSG hefur áhuga á því að fá Jadon Sancho, leikmann Manchester United í ensku úrvalsdeildinni, í sínar raðir.

Snacho var á láni hjá Dortmund á síðasta tímabili en hefur tekið þátt á undirbúningstímabilinu með United og spilaði 45 mínútur í æfingaleik gegn Rangers á dögunum. 

Franskir miðlar hafa fjallað um áhuga PSG á leikmanninum í dag en hann var í lykilhlutverki hjá Dortmund á síðasta tímabili frá því að hann kom í janúar og liðið komst alla leið í úrsleitaleikinn í Meistaradeild Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert