Sá sem skoraði tíu í einum leik farinn frá Arsenal

Chido Obi-Martin er farinn frá Arsenal.
Chido Obi-Martin er farinn frá Arsenal. Ljósmynd/Arsenal

Leikmaðurinn eftirsótti Chido Obi-Martin er farinn frá enska knattspyrnufélaginu Arsenal. 

Obi-Martin, sem er frá Danmörku, er aðeins 16 ára gamall en hann hefur verið aðalmaður U18 ára liðs Arsenal. 

Hann skoraði til að mynda tíu mörk í 14:3-sigri U16 ára liðs Arsenal á jafnöldrum sínum í Liverpool í nóvember í fyrra. 

Arsenal reyndi að halda í leikmanninn en hann rær nú á önnur mið. Manchester United er sagt hafa áhuga á táningnum sem og félög í Þýskalandi samkvæmt enskum miðlum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert