Viss um að enski landsliðsmaðurinn sé ekki á förum

Alexander Isak og Anthony Gordon, leikmenn Newcastle.
Alexander Isak og Anthony Gordon, leikmenn Newcastle. AFP/Peter Powell

Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcaste United, er viss um að enski landsliðsmaðurinn Anthony Gordon sé ekki á förum frá ensku úrvalsdeildarfélaginu.

Liverpool er eitt af liðunum sem reyndu að fá Gordon í sumar en Gordon Howe sagði að hann væri mikilvægur partur af framtíðarplönum liðsins.

„Við höfum ekki átt nein samtöl um að hann sé óánægður, hann hefur alltaf gert allt fyrir liðið og ég vil að það sé skýrt fyrir stuðningsmenn liðsins. Anthony þarf smá pásu en eftir það verður hann tilbúinn,“ sagði Howe.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert