Chelsea býður í markvörð

Enzo Maresca er á höttunum eftir markverði
Enzo Maresca er á höttunum eftir markverði Getty Images

Chelsea hefur boðið tuttugu milljónir evra í Filip Jörgensen, markvörð Villareal. Jörgensen er 22 ára gamall og leikur fyrir U21 árs landslið Danmerkur.

Jörgensen er talinn eiga að veita Robert Sanchez samkeppni um markvarðastöðuna hjá Lundúnaliðinu en Fabrizio Romano greinir frá tilboðinu á X síðu sinni. 

Enzo Maresca tók við starfi knattspyrnustjóra Chelsea í vor en ýmsir markmenn hafa verið orðaðir við félagið í sumar. Jorgensen er einnig talinn vera á blaði hjá Marseille.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert