Kræktu í efnilegan táning frá Juventus

Dean Huijsen er á leið til Bournemouth.
Dean Huijsen er á leið til Bournemouth.

Enska knattspyrnufélagið Bournemouth hafði betur í kapphlaupi við nokkur önnur félög um hollenska táninginn Dean Huijsen en félagið kaupir hann af Juventus á Ítalíu.

Huijsen er 19 ára varnarmaður sem á að baki einn leik með Juventus í A-deildinni en spilaði síðan 14 leiki með Roma í sömu deild sem lánsmaður á síðasta keppnistímabili. 

Hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Hollands en hefur nú nýtt sér spænskt ríkisfang, þar sem fjölskyldan hefur búið frá fimm ára aldri, og leikið með 21-árs landsliði Spánar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert