Smith Rowe á förum frá Arsenal

Emile Smith Rowe er á förum frá Arsenal
Emile Smith Rowe er á förum frá Arsenal AFP

Miðjumaðurinn Emile Smith Rowe er á förum frá Arsenal en Mikel Arteta, knattspyrnustjóri félagsins, gaf sterklega til kynna að leikmaðurinn væri í viðræðum við annað félag.

Arsenal mætti Bournemouth í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt en Smith Rowe var ekki í leikmannahópi liðsins. Aðspurður eftir leikinn sagði Arteta: 

„Það er eitthvað að gerast bakvið tjöldin. Við ákváðum að það væri best fyrir leikmanninn að halda honum utan hóps í leiknum“.

Smith Rowe er líklega á leið til Fulham en Crystal Palace hefur einnig áhuga á miðjumanninum sem er metinn á 35 milljónir punda. Leikmaðurinn er alinn upp hjá Arsenal og á að baki þrjá A-landsleiki fyrir England.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert