Úlfar orðaðir við Liverpool

Arne Slot
Arne Slot AFP/Bart Stoutjesdijk

Liverpool er sagt hafa rætt við Wolves um vængmanninn Pedro Neto og bakvörðinn Rayan Ait-Nouri en Arne Slot, nýráðinn knattspyrnustjóri Liverpool, er á höttunum eftir liðstyrk fyrir næsta tímabil samkvæmt staðarblaðinu Liverpool Echo.

Mohammed Salah er á síðasta ári samnings síns við félagið og Luis Diaz hefur verið orðaður við spænsku risana Real Madrid og Barcelona. Neto er sagður eiga að auka breiddina og samkeppnina um kantstöðurnar. 

Joel Matip og Thiago Alcantara hafa yfirgefið félagið og líklegt þykir að Liverpool kaupi miðvörð og miðjumann en vinstri bakvörðurinn Ait-Nouri gæti verið fenginn til að keppa við Andy Robertson um bakvarðarstöðuna og leysa Kostas Tsimikas af hólmi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert