Arsenal vann í vító

Fabio Vieira er fagnað af liðsfélögum sínum í nótt
Fabio Vieira er fagnað af liðsfélögum sínum í nótt AFP/Orlando Ramirez

Ensku úrvalsdeildarliðin Arsenal og Bournemouth mættust í æfingaleik í Los Angeles í nótt, leiknum lauk með 1:1 jafntefli en Skytturnar voru sterkari í vítaspyrnukeppni.

Fabio Vieira kom Arsenal yfir eftir átján mínútna leik eftir sendingu Reiss Nelson. Antoine Semenyo jafnaði metin fyrir Bournemouth á 73. mínútu með góðu skoti en Arsenal skipti sjö leikmönnum af velli á 62. mínútu. 

Að loknum níutíu mínútum var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Arsenal skoraði úr fimm af sex spyrnum sínum, Leandro Trossard var sá eini sem brást bogalistin. Philip Billing og Ryan Christie klikkuðu á sínum spyrnum fyrir Bournemouth.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert