Olmo á leið til ensku meistaranna?

Dani Olmo með Evrópubikarinn í Þýskalandi fyrr í þessum mánuði.
Dani Olmo með Evrópubikarinn í Þýskalandi fyrr í þessum mánuði. AFP/Kirill Kudryavtsev

Ensku meistararnir Manchester City eru komnir í baráttuna um spænska sóknartengiliðinn Dani Olmo sem leikur með RB Leipzig í Þýskalandi.

Franski miðillinn Foot Mercado segir að City sé þegar búið að gera tilboð í Olmo.

Barcelona er á höttunum á eftir Olmo og hefur boðið Leipzig 60 milljónir punda, þar af 20 milljónir í bónusum, en Þjóðverjarnir höfnuðu því boði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert