Slot segir erfitt að finna leikmenn

Arne Slot reynir að styrkja lið Liverpool
Arne Slot reynir að styrkja lið Liverpool Ljósmynd/Liverpool

Arne Slot, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool, segir félagið vera á höttunum eftir nýjum leikmönnum. Hollendingurinn segir erfitt að finna leikmenn sem styrkja liðið.

Joel Matip og Thiago Alcantara yfirgáfu Liverpool í sumar þegar samningar þeirra runnu út og nú þegar þrjár vikur eru þar til liðið heimsækir Ipswich í fyrsta deildarleik næsta tímabils hefur enginn komið í staðinn.

„Við gerum miklar kröfur til leikmanna sem við erum að skoða, liðið okkar er mjög sterkt. Auðvitað reyna Richard Hughes (yfirmaður knattspyrnumála innsk.) og ég að styrkja liðið en það er ekki auðvelt þegar liðið er skipað svo mörgum góðum leikmönnum“.

„Það kæmi mér mikið á óvart ef við kaupum ekki leikmann. Það mun gerast en núna bíðum við eftir að endurheimta alla okkar menn og eftir rétta tækifærinu.“ Sagði Slot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert