United vill leikmann sem vildi ekki West Ham

Noussair Mazraoui í leik með Marokkó gegn Spáni á HM …
Noussair Mazraoui í leik með Marokkó gegn Spáni á HM í Katar. AFP/Javier Soriano

Enska knattspyrnufélagið Manchester United freistar þess nú að kaupa Noussair Mazraoui, landsliðsbakvörð Marokkó, af Bayern München.

West Ham reyndi á dögunum að kaupa hann af þýska félaginu og hafði náð samkomulagi við Bayern um að greiða tæpar 20 milljónir punda fyrir Mazraoui, en leikmaðurinn hafnaði því hins vegar að fara til Lundúnafélagsins.

Sky í Þýskalandi segir að Manchester United sé nú komið á fulla ferð við að reyna að taka upp þráðinn og fá Mazraoui í sínar raðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert