Dani verður markvörður Chelsea

Enzo Maresca er nýr knattspyrnustjóri Chelsea.
Enzo Maresca er nýr knattspyrnustjóri Chelsea. AFP/Thearon W. Henderson

Danski knattspyrnumarkvörðurinn Filip Jörgensen er að ganga til liðs við Chelsea. 

Frá þessu greinir félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano en Chelsea mun greiða 24,5 milljónir evra fyrir Danann. 

Jörgensen kemur til Chelsea frá Villareal á Spáni en þar gerði hann gott mót í fyrra. 

Daninn er aðeins 22 ára gamall og á að keppa við Spánverjann Robert Sánchez um markvarðastöðuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka