Afhroð Chelsea gegn Celtic

Carney Chukwuemeka vonsvikinn í gærkvöldi.
Carney Chukwuemeka vonsvikinn í gærkvöldi. AFP/Kamil Krzacynski

Enska knattspyrnustórveldið Chelsea mátti þola skell fyrir Celtic frá Skotlandi, 4:1, í æfingaleik liðanna í Indiana í Bandaríkjunum í gær. 

Chelsea hefur þar með gert jafntefli við C-deildarlið Wrexham, 2:2, og tapað stórt fyrir Celtic á þessu undirbúningstímabili. 

Matthew O'Riley, Kyogo Furuhashi, Luis Palma og Michael Johnston sáu til þess að Celtic komst í 4:0 en Christopher Nkunku lagaði aðeins stöðuna fyrir Chelsea undir blálok leiks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert