Arsenal á eftir sænskri markavél

Viktor Gyökeres er orðaður við Arsenal
Viktor Gyökeres er orðaður við Arsenal AFP

Viktor Gyökeres, framherji Sporting Lissabon, er orðaður á nýjan leik við Arsenal en Svíinn skoraði 43 mörk í 50 leikjum á síðasta tímabili.

Hinn 26 ára Gyökeres var orðaður við flest stærstu lið Evrópu á síðasta tímabili en portúgölsku meistararnir keyptu hann síðasta sumar frá Coventry. Svínn sló hressilega í gegn í Lissabon og nú hefur Sporting endursamið um framhaldssölu prósentuna sem Coventry fær í sinn hlut.

Samkomulag var á milli félaganna um að hægt væri að endursemja um þann þátt að ári liðnu og í stað upphaflegu fimmtán prósentanna sem Coventry fær í sinn hlut verða það tíu prósent. Gyökeres er með klásúlu sem leysir hann undan samningi ef tilboð upp á 86 milljónir evra berst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert