Þýski markaskorarinn Niclas Füllkrug er á óskalista West Ham. Füllkrug á tvö ár eftir af samningi sínum við Borussia Dortmund.
West Ham hefur ekki náð samkomulagi við Aston Villa um Kólumbíumanninn Jhon Duran og hafa menn í Lundúnum því snúið sér að öðrum skotmörkum samkvæmt Sky Sports.
Füllkrug skoraði fimmtán mörk á síðasta tímabili þegar Dortmund fór alla leið í úrslit Meistaradeildar Evrópu en hann skoraði einnig tvö mörk fyrir Þjóðverja á EM í sumar.
Norðmaðurinn Alexander Sörloth, næst markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar á síðasta tímabili, er einnig orðaður við West Ham. Sörloth leikur fyrir Villareal en hann skoraði 23 deildarmörk fyrir Gula kafbátinn á tímabilinu.