Liverpool hafnaði tilboði

Wataru Endo spilaði 29 leiki með Liverpool í úrvalsdeildinni síðasta …
Wataru Endo spilaði 29 leiki með Liverpool í úrvalsdeildinni síðasta vetur. AFP/Kamil Krzaczynski

Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur hafnað tilboði Marseille í Frakklandi í japanska miðjumanninn Wataru Endo, samkvæmt enskum fjölmiðlum.

Sagt er að Marseille hafi boðið 11,8 milljónir punda í japanska landsliðsfyrirliðann sem festi sig vel í sessi sem varnarsinnaður miðjumaður hjá Liverpool á síðasta tímabili.

Endo er 31 árs gamall og lék með Stuttgart í Þýskalandi í fjögur ár áður en hann kom til Liverpool fyrir 16 milljónir punda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert