Ná samkomulagi við Arsenal

Emile Smith Rowe er á leiðinni til Fulham.
Emile Smith Rowe er á leiðinni til Fulham. AFP/Glyn Kirk

Fulham er búið að ná samkomulagi við Arsenal um kaup á enska knattspyrnumanninum Emile Smith Rowe. 

Enskir miðlar greina frá en félögin eiga nú aðeins eftir að ganga frá pappírum og þá getur Smith Rowe gengið í raðir Fulham. 

Fulham mun greiða Arsenal 27 milljónir en auk þess geta sjö milljónir bæst við með árangurstengdum greiðslum. 

Smith Rowe er uppalinn hjá Arsenal og var í stóru hlutverki fyrir árið 2022 en þá meiddist hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert