Spánverjinn ekki með Tottenham á næsta tímabili

Hlutirnir hafa ekki gengið upp hjá Bryan Gil til þessa …
Hlutirnir hafa ekki gengið upp hjá Bryan Gil til þessa hjá Tottenham. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Bryan Gil er genginn til liðs við Girona í heimalandinu á eins árs lánssamningi. 

Gil verður því ekki með Tottenham á næsta tímabili en hann gekk í raðir Tottenham sumarið 2021 frá Sevilla. 

Síðan þá hefur hann lítið spilað með enska félaginu og farið tvívegis á lán, til Sevilla og Valencia. 

Nú mun hann spila fyrir spútníklið spænsku deildarinnar á síðasta tímabili, Girona sem komst í Meistaradeildina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert