Ten Hag að kaupa fyrrum lærisvein

Erik ten Hag er á höttunum eftir fleiri Ajax mönnum
Erik ten Hag er á höttunum eftir fleiri Ajax mönnum AFP/Ben Stansall

Noussair Mazraoui, leikmaður Bayern München er á leið til Manchester United samkvæmt enskum fjölmiðlum. Mazraoui er hefur áður spilað fyrir Erik ten Hag, þjálfara United, en þeir unnu saman hjá Ajax.

Greint er frá því að Aaron Wan-Bissaka muni fara til West Ham en Manchester United þarf að selja hann fyrst. Bakverðirnir eru báðir metnir á sextán milljónir punda.

West Ham vildi einnig fá Mazraoui en leikmaðurinn vill frekar fara til Manchester sem opnar þá möguleikann fyrir rauðu djöflanna að selja Wan-Bissaka til Lundúna og fjármagna kaupin á Marokkómanninum.

Ten Hag hefur sótt mikið í leikmenn sem hann þjálfaði hjá Ajax síðan hann kom á Old Trafford en United er einnig á höttunum á eftir Mathijs De Ligt, leikmanni Bayern München, sem á einnig fortíð hjá ten Hag í Ajax.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert