Tilkynntur hjá Arsenal með skemmtilegu myndskeiði

Riccardo Calafiori ásamt knattspyrnustjóranum Mikel Arteta.
Riccardo Calafiori ásamt knattspyrnustjóranum Mikel Arteta. Ljósmynd/Arsenal

Enska knattspyrnufélagið Arsenal er búið að tilkynna komu nýjasta leikmanns síns Riccardo Calafiori. 

Félagið birti myndskeið þar sem að Mikel Arteta knattspyrnustjóri Arsenal býður hann velkominn á fundi liðsins. 

Calafiori kemur til Arsenal frá Bologna en enska liðið er um þessar mundir í æfingaferð í Bandaríkjunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert