Arteta vill meira

Arteta ásamt Calafiori
Arteta ásamt Calafiori Ljósmynd/Arsenal

Mikel Arteta segist vilja styrkja lið Arsenal enn frekar fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Ítalski varnarmaðurinn Riccardo Calafiori er nýgenginn til liðs við Skytturnar.

„Við þurfum að bíða og sjá hvernig markaðurinn þróast. Við höfum þegar greint stöðurnar sem við viljum styrkja. Við funduðum í febrúar, mars og apríl um hvernig við gætum styrkt liðið“, sagði Arteta.

Arteta efast þó um að félagið geti eytt jafn miklum fjármunum og félagið gerði við kaupin á Declan Rice síðasta sumar.

Mikel Arteta í heimsókn á heimavelli LA Rams á dögunum.
Mikel Arteta í heimsókn á heimavelli LA Rams á dögunum. AFP/Patrick T. Fallon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert