Frá Leeds til West Ham

Crysencio Summerville oí leik gegn West Ham.
Crysencio Summerville oí leik gegn West Ham. AFP/Ben Stansall

Hollenski knattspyrnumaðurinn Crysencio Summerville er á leiðinni frá Leeds til West Ham. 

Enskir miðlar greina frá en Summerville hefur verið lykilmaður í liði Leeds undanfarin tvö tímabil. 

West Ham mun greiða Leeds upp í 25 milljónir punda fyrir Hollendinginn. 

Summerville mun gangast undir læknisskoðun á næstu 24 tímum og síðan fljúga til Bandaríkjanna þar sem West Ham er í æfingaferð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert