Framherjinn frá þar til í lok árs

Igor Thiago.
Igor Thiago. Ljósmynd/Brentford

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Igor Thiago, sem kom til enska úrvalsdeildarliðsins Brentford frá Club Brug­ge í Belgíu í sumar, er meiddur og verður frá þar til í lok árs.

Thiago skrifaði undir fimm ára samning við Brentford í sumar en meiddist í 5:2-sigri liðsins gegn AFC Wimbledon 20. júlí og þurfti að fara í aðgerð á hné.

Hann er 23 ára gamall og átti að koma inn í stað Ivan Toney sem er mögulega á förum frá félaginu en ekkert hefur verið staðfest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert