Liverpool vann Arsenal

Mohamed Salah skoraði fyrra mark Liverpool
Mohamed Salah skoraði fyrra mark Liverpool AFP/Charly Triballeau

Liverpool lagði Arsenal að velli, 2:1, í æfingaleik sem fram fór fyrir framan 69,879 áhorfendur í Fíladelfíu í Bandaríkjunum í nótt. Mohamed Salah og Fabio Carvalho skoruðu mörk Liverpool.

Liverpool komst í 2:0 eftir skyndisóknarmark Salah á þrettándu mínútu og tíu mínútum fyrir hálfleik tvöfaldaði Carvalho forystuna. Kai Havertz minnkaði muninn fyrir Arsenal á fertugustu mínútu. 

Arsenal tók öll völd á vellinum í síðari hálfleik en Caoiminhin Kelleher lokaði marki Liverpool og tryggði lærisveinum Arne Slot sigurinn. Hollendingurinn er enn ósigraður í æfingaferðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert