Slot harður við mann leiksins

Arne Slot í æfingaleik Liverpool og Arsenal í gærkvöldi.
Arne Slot í æfingaleik Liverpool og Arsenal í gærkvöldi. AFP/Drew Hallowell

Arne Slot var ánægður með stoðsendingar Harvey Elliott í æfingaleik Liverpool og Arsenal sem fram fór í  Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Elliott lagði upp bæði mörk Liverpool í 2:1 sigri liðsins.

Spurður um frammistöðu Elliott í leiknum sagði Slot að stoðsendingarnar hefðu verið góðar en sagði liðið hafa búið til góðar stöður fyrir Englendinginn unga.

„Þegar við spilum úr vörninni og komum boltanum til hans (Elliott, innsk.) eða einhvers annars sóknarmanns á réttum stöðum  þá þarf hann að nýta tækifærið og í dag gerði hann það með tveimur stoðsendingum“. Sagði Slot í leikslok.

„Ef ég er harður við hann þá fannst mér hann klikka í tveimur öðrum augnablikum þar sem hann gat gert betur en þetta er það sem liðið gerir fyrir hann eða leikmann í hans leikstöðu.“ 

Mohamed Salah og Fabio Carvalho nutu góðs af stoðsendingum Elliott í gærkvöldi og skoruðu mörkin í fyrri hálfleik í gær áður en Kai Havertz minnkaði muninn fyrir Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert