Yoro og Højlund lengi frá

Leny Yoro verður lengi frá vegna meiðsla
Leny Yoro verður lengi frá vegna meiðsla Ljósmynd/Manchester United

Leny Yoro verður frá keppni næstu þrjá mánuðina og Rasmus Højlund í sex vikur en þeir meiddust báðir í æfingaleik Manchester United og Arsenal sem fram fór á laugardaginn. 

Enskir fjölmiðlar greina frá því að Yoro verði frá vegna meiðsla á fæti þar til í lok nóvember og missi líklega af níu fyrstu leikjum Manchester United í ensku úrvalsdeildinni ásamt leikjum í Evrópudeildinni og enska deildarbikarnum. 

Højlund meiddist í aftanverðu læri og missir meðal annars af leik Manchesterliðsins gegn Liverpool fyrsta september. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert