Smith Rowe keyptur á metfé

Smith Rowe í treyju Fulham
Smith Rowe í treyju Fulham Ljósmynd/Fulham FC

Fulham hefur keypt Emile Smith Rowe frá Arsenal og er hann dýrasti leikmaður í sögu Fulham.

Upphæðin er talin vera 27 milljónir punda en gæti endað í 34 milljónum fyrir miðjumanninn sem spilaði ekki nema 346 mínútur á síðasta tímabili fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni vegna hnémeiðsla.

Leikmaðurinn var kynntur af Fulham í dag með skemmtilegu myndbandi þar sem Thames áin í Lundúnum var í stóru hlutverki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert