Solanke til Tottenham?

Dominic Solanke gæti farið til Tottenham
Dominic Solanke gæti farið til Tottenham AFP/Orlando Ramirez

Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri Tottenham, staðfestir að félagið sé í framherjaleit. Dominic Solanke, framherji Bournemouth, er orðaður við félagið.

„Það er staðan þar sem okkar vantar mannskap“, sagði Postecoglou um framherjastöðu Tottenham við Football London. Heung-Min Son og Richarlison eru einu framherjar liðsins auk Alejo Véliz sem lék á láni hjá Sevilla á síðasta tímabili.

Solanke skoraði nítján deildarmörk fyrir Bournemouth á síðasta tímabili en margir fjölmiðlar greina frá áhuga Tottenham á Englendingnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert