Frá Spáni til Lundúna

Jorge Cuenca er kominn til Fulham frá Villarreal.
Jorge Cuenca er kominn til Fulham frá Villarreal. Ljósmynd/Fulham

Enska knattspyrnufélagið Fulham hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Jorge Cuenca frá Villarreal á Spáni. Leikmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við Lundúnafélagið.

Kaupverðið er um sex milljónir punda. Hann lék 37 leiki með Villarreal á síðustu leiktíð og hefur einnig leikið með Almería og Getafe.

Varnarmaðurinn á leiki fyrir yngri landslið Spánar, en hann getur leikið sem miðvörður og bakvörður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert