Füll­krug til West Ham

Niclas Füllkrug.
Niclas Füllkrug. AFP/Ina Fassbender

Þýski marka­skor­ar­inn Niclas Füll­krug er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United.

Þetta staðfesti félagið í dag.

Framherjinn skrifar undir fjögurra ára samning við West Ham en hann kemur til liðsins frá Borussia Dortmund á 27,5 milljónir punda. Füll­krug fór frá Werder Bremen á síðasta ári og til Dortmund þar sem hann skoraði 15 mörk í 43 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert