Liverpool skoðar miðjumann

Martin Zubimendi.
Martin Zubimendi. AFP/Adrian Dennis

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er að fylgjast með Martin Zubimendi, leikmanni Real Sociedad í spænsku 1. deildinni.

Liverpool hefur ekki fengið nein nýjan leikmann síðan Arne Slot tók við sem knattspyrnustjóri liðsins eftir síðasta tímabil.

Samkvæmt Sky Sport er liðið að skoða spænska miðjumanninn Zubimendi sem var Evrópumeistari í sumar.

Zubimendi kom inn á í hálfleik fyrir Rodri og hjálpaði liðinu við það að sigra England 2:1 í úrslitaleiknum.

Hann er 25 ára gamall og hefur verið hjá Sociedad síðan 2011. Liðið  endaði í sjötta sæti í deildinni á síðustu leiktíð og hann skoraði fjögur mörk í 31 leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert