Ítalski knattspyrnumaðurinn Riccardo Calafiori verður ekki með Arsenal í æfingaleik liðsins gegn Bayer Leverkusen sem hefst á heimavelli Arsenal í Lundúnum innan skamms.
Þá verður Hollendingurinn Jurrien Timber, sem glímdi við meiðsli allt síðasta tímabil eftir að hafa slitið krossband, ekki heldur með skyttunum í dag.
Báðir eru að glíma við smávægileg meiðsli en þeir eru líklegir til að berjast um vintri bakvarðarstöðuna hjá liðinu á næsta tímabili.
Fyrsti leikur Arsenal í ensku úrvalsdeildinni er gegn Wolves þann 17. ágúst.