André Onana, markmaður Manchester United í ensku úrvalsdeild karla, vill að stuðningsmenn liðsins séu undirbúnir fyrir áhættu.
„Áhætta? Það er ég. Ég held að það er það sem fólk muni sjá á þessu tímabili því ég mun taka marga áhættuna. Ég get sagt þér það strax.
Bestu lið í heimi taka áhættu og spila boltanum frá markmanni, átta sig á aðstæðum, þegar mótherjinn fer einn á móti einum eða hvort sem liðið er er að pressa með þrjá eða fjóra.
Verið undirbúin því svona verður þetta á næsta tímabili, treystið mér. Ég mun njóta þess en meira þegar tímabilið hefst,“ sagði Onana.