United vill franska landsliðsmanninn

Youssouf Fofana.
Youssouf Fofana. AFP/Fabrice Coffrini

Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur áhuga á franska landsliðsmanninum Youssouf Fofana.

Fofana er 25 ára gamall miðjumaður og spilar með Monaco í frönsku deildinni og er á síðasta ári samnings síns við félagið. Hann hefur verið í Monoco frá árinu 2020 og spilað 175 leiki.

Hann var í hópnum hjá franska landsliðinu á Evrópumótinu í sumar og hefur spilað 21 leik fyrir landsliðið.

United er einnig að skoða Richard Rios  sem spilar með Palmeiras, Sander Berge í Burnley, Martin Zubimendi í Real Sociedad og Sofyan Amrabat, leikmann Fiorentina, sem var á láni hjá United á síðasta tímabili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert