Franski knattspyrnumaðurinn Kurt Zouma er á förum frá enska úrvalsdeildarfélaginu, West Ham, til Shabab Al-Ahli í Dubaí.
Sky Sport greinir frá þessu en Zouma er 29 ára varnarmaður og á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Hamrana.
Hann kom til West Ham frá Chelsea árið 2021 og hefur spilað 103 leiki með liðinu en samtals 247 leiki í ensku úrvalsdeildinni, með West Ham, Chelsea og Everton.
Shabab Al-Ahl lenti í öðru sæti í deildinni en þar eru til dæmis Luka Milivojevic, sem spilaði lengi með Crystal Palace.