Jean-Clair Todibo er að ganga til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið í knattspyrnu, West Ham, frá franska félaginu Nice.
Hann kemur á láni út næsta tímabil, samkvæmt enskum miðlum, en eftir það getur liðið keypt hann fyrir 40 milljónir evra.
Ítalska stórveldið Juventus var einnig á eftir 24 ára varnarmanninum en liðin komust ekki að samkomulagi. Fyrr í sumar sýndi Manchester United einnig áhuga á honum en ekkert varð úr því.