Risastór nöfn ekki með City á morgun

Phil Foden verður ekki með Manchester City á morgun.
Phil Foden verður ekki með Manchester City á morgun. AFP/Oli SCARFF

Manchester City verður án fjögurra lykilmanna gegn Manchester United í leik þeirra um Samfélagsskjöld enskrar knattspyrnu karla á morgun. 

Liðin mætast á Wembley en Manchester City er Englandsmeistari og United bikarmeistari. 

Rodri, Phil Foden, Kyle Walker og John Stones verða ekki með City-liðinu á morgun samkvæmt enskum miðlum. 

Leikurinn hefst klukkan 14 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert