Enska knattspyrnufélagið Tottenham hefur tilkynnt kaupin á enska framherjanum Dominic Solanke frá Bournemouth.
Tottenham greiðir 65 milljónir punda fyrir Solanke sem skrifar undir sex ára samning hjá félaginu. Upphæðin gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Tottenham.
Solanke átti frábært tímabil með Bournemouth á síðustu leiktíð. Hann skoraði 19 mörk og var lykilleikmaður í velgengni liðsins.
Solanke er uppalinn í Chelsea en hann hefur einnig spilað fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
We are delighted to announce the signing of Dominic Solanke from Bournemouth.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 10, 2024
Welcome to Tottenham, Dominic! 🤍