Erik ten Hag, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, telur að brasilíski knattspyrnumaðurinn Casemiro sé tilbúinn að láta til sín taka á næsta tímabili.
Casemiro er 32 ára gamall og fékk mikla gagnrýni fyrir síðasta tímabil. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Jamie Carragher sem vinnur sem sérfræðingur í sjónvarpi stakk upp á því að hann ætti að hætta í fótbolta.
Casemiro var í byrjunarliði United í leiknum um Samfélagsskjöld Englands og stóð sig vel. Eftir leikinn hrósaði Erik ten Hag honum í viðtali á heimasíðu liðsins.
„Hann er í mjög góðu formi og ég tel að sem lið vinnum við vel saman sem gerir þetta auðveldara fyrir Casemiro. Hann er mikill leiðtogi og mikilvægur fyrir liðið, bæði í vörn og sókn, við vinnum saman,“ sagði Erik ten Hag.