Knattspyrnumaðurinn Conor Gallagher er á leiðinni aftur til Chelsea þrátt fyrir að hann var tilkynntur sem leikmaður Atlético Madrid á dögunum.
Gallagher var búinn að gangast undir læknisskoðun hjá Atlético og skrifa undir samning þar en félögin áttu eftir að ganga frá pappírum.
Chelsea átti að fá framherjann Samu Omorodion í staðinn en hann náði ekki samkomulagi við Chelsea.
Enn er möguleiki á að Gallagher verði leikmaður Atlético en Chelsea vildi fá hann til baka á meðan að allt er í lofti, samkvæmt enskum miðlum.